Færsluflokkur: Bloggar

Hvort færð þú 158.000 kr. í atvinnuleysisbætur eða 220.000 kr.?

Verið að setja lög á Alþingi nú á þessum dögum um að atvinnuleysisbætur verði tekjutengdar.

Þeir sem höfðu laun og hafa laun undir 315.000 krónur fá 158.000 krónur í atvinnuleysisbætur

en allir bankamenn sem misst hafa starf sitt nýlega og allir sem hafa laun yfir 315.000 krónur fá kr. 220.000 krónur í atvinnuleysisbætur.

Af hverju er félagsmálaráðherra að binda í lög þetta tekjumisræmi?

Hvað hefur hún á móti þeim sem hafa haft um kr. 200.000 og minna í mánaðarlaun?  Af hverju skammtar hún því fólki lægri atvinnuleysisbætur?

Tek ég þó fram að Jóhanna Sigurðardóttir hefur alla tíð átt traust mitt og virðingu fyrir réttlætiskennd.

Hvað segir verkalýðshreyfingin við þessu?

Hvað segja forystumenn ASÍ - hvað segja forystumenn VR - hvað segir forystumaður BSRB??????? 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband