Gísli Marteinn - þú hefur áhyggjur af því að mótmæli á Íslandi komi til með að bitna mjög á ferðaþjónustu á Íslandi! (Sjá vísi.is í dag) !!!!!!!!!!!
Satt best að segja ætla ég að fræða þig um ákveðna hluti varðandi ferðaþjónustu á Íslandi.
Því hefur verið haldið fram að fall íslensku krónunnar ætti að koma útflutningsgreinum hér á landi til bóta. Það gerir það varðandi sjávarútveginn ef ,,fólk" og þjóðir hafa efni á að kaupa fiskinn okkar. Eins og staðan er í dag þá eru allar frystigeymslur fullar af fiski. Álverð er í sögulegu lágmarki!
Varðandi ferðaþjónustu þá vil ég segja þér eftirfarandi: Markaðssetning Íslands hefur að mestu leyti átt sér stað í eftirfarandi löndum: BNA, Bretlandi, Frakklandi, Norðurlöndunum, Þýskalandi, Spáni, Ítalíu sem og niðurlöndunum.
Þar sem þú byrð nú um stundir á meðal engil-zaxa hlýtur þér að vera ljóst að sú þjóð stendur frammi fyrir gífurlegum efnahagsörðugleikum. Þá spyr ég þig - áttu von á því að það verði mikil aðsókn Breta í ferðum til Íslands, nú í þessum efnahagsþrengingum? Þeir sem á annað borð ferðast eru líklegir til þess að eyða fríum sínum í löndum, sem er ódýrara að ferðast til og lifa.
Þrátt fyrir að gengi íslensku krónunnar sé hagstætt fyrir margan ferðamanninn, þá hefur allur kostnaður hér heima stóraukist, matvælaverð - orkuverð - verð á þjónustu, gistingu o.fl.
Áður en þú ,,borgarfulltruinn" heldur svo alvarlegu máli fram, kynntu þér þá málin ofan í kjölin.
Íslendingar hafa markaðsett land sitt mest-megnis í þeim löndum, þar sem verulega kreppir að í efnahagsmálum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Dæmigert fyrir mann eins og Gísla að trúa því að við gefum Afslátt af lýðræðinu fyrir nokkra túrista.
Víðir Benediktsson, 23.1.2009 kl. 22:52
Svona rugl er áhugavert og því munu ferðir skynsamra manna aukast UMTALSVERT til Íslands... Samtímis munu menn ekki skoða einhver krútt í miðborg Reykjavíkur, heldur fara út á land og kynnast sveitavargnum og þar með heimasætum í stað "Dirty weekends"
Bjarni G. P. Hjarðar, 23.1.2009 kl. 23:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.