30.1.2009 | 14:49
Geir Hilmar Haarde, af hverju er þá allt þetta fólk atvinnulaust? Af hverju eru fyrirtækin að hrynja?
Á sérstökum hvatningarfundi á Nordica-Hilton sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir núna - gerir Geir Hilmar Haarde lítið úr vanda íslensku þjóðarinnar.
Þá segir hann Samfylkingu hafa slitið stjórnarsamstarfi vegna haturs á einum manni!
En enn og aftur Geir - hvað með fólkið í landinu? Fólkið í landinu sem skapar þjóðarauðinn? Verður það vegna haturs á einum manni sem reiknað er með að 20.000 manns verði án atvinnu nú í byrjun sumars?
Stuðningsmenn sem fagna ákaft formanni/foringja sínum hafa sjálfsagt sömu skoðanir!
Gera of mikið úr vandanum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.