16.4.2009 | 00:50
Bjarni Benediktsson er með ótrúlega langt nef!
Þrátt fyrir að vera skráður með félag utan um prófkjörsbaráttu sína árið 2007 sem skilgreint var sem velferðar- og mannúðarsamtök -til þess að þurfa ekki að greiða skatta af þessu né birta reikninga, sagði hann á fundi í kvöld (Höldum vörð um velferðina) að þetta væru dylgjur!
Þrátt fyrir að fyrirtækið sé á fyrirtækjaskrá og hafi sérstaka kennitölu!
Þrátt fyrir að hafa svarað blaðamönnum Mannlífs játandi að þetta væri sitt félag og að kosningabarátta sín hefði kostað eina milljón!
Þá horfði hann í augu mér þegar hann svaraði spurningu minni og sagði að þetta væru dylgjur!
Þar til annað kemur í ljós að dylgjað sé um hann og 16 aðra þingmenn sem notuðu þessa aðferð til þess að þurfa ekki að greiða skatta af þessu fjármagni - mun nef hans og fleirri lengjast!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sagði hann ekki líka að skattahækkanir á laglaunafólk síðustu 13 ár til að greiða ríkisskuldir væru dylgjur
Stefán Benediktsson (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 01:50
Það hefði verið gaman að vera þarna. Skítt að hann, lögfræðingurinn nýti svona skítasmugu fyrir skattaundanskot.
...farin að sofa.
Kolla (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 02:00
Man ekki hvort hann notaði akkúrat það orð yfir skattaumræðuna en merking orðs hans þýddi aðeins meira en dylgjur!
Alma Jenny Guðmundsdóttir, 16.4.2009 kl. 03:23
Bjarni er fyndinn þessa dagana.
Jens Sigurjónsson, 16.4.2009 kl. 04:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.