Óhófleg bjartsýni Íslendinga vegna ferðaþjónustunnar á komandi misserum!

Ég hef verið að benda hinum íslensku bjartsýnismönnum á að ekki skuli þeir svo öruggir með innkomu gjaldeyris af ferðamönnum og vísa ég í þessa grein Alþjóða-ferðamálastofnunar SÞ.

Íslendingar hafa að mestu markaðssett sig a Norðurlöndunum, Bretlandi, Frakklandi, Þýskalandi, Hollandi, Ítalíu og BNA.

Í þessum löndum er efnahagsástand mjög bágt.  Þótt íslenska krónan sé hagstæð, verður ekki það sama sagt um innlendan kostnað vegna hárra stýrivaxta og mikillar verðbólgu.

Bretar hafa verið fjölmennir í þeim hópi sem sækja Íslendinga heim - en munu þeir ferðast mikið á milli landa, fremur en við?  Efnahagsástand þeirra er orðið afar slæmt.  Þá horfir illa hjá Frökkum í þeim málum einngi.

Þá eru önnur rök fyrir þessari skoðun minni sú, að fólk í Evrópu - sem á annað borð fer á milli landi, muni sækja heim ódýrari lönd en okkur.

 Held að við þurfum að vera raunsæ í spám okkar um fjölda erlenda ferðamanna til Íslands, næstu misserin og miða áætlanir við raunverulegt ástand á þeim mörkuðum sem við höfum mest sótt á.

Þá ætti Ferðamálaráð - undir Iðnaðarráðuneyti að fara að kanna markaðssókn í Asíu en þar eru efnahagshorfur ekki alveg eins slæmar.


mbl.is Ferðamönnum fækkar í Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband